Hjarta Akraness – gönguleiðsögn á íslensku

Hjarta Akraness – gönguleiðsögn á íslensku

2,500 kr
Sale price  2,500 kr Regular price 
Skip to product information
Hjarta Akraness – gönguleiðsögn á íslensku

Hjarta Akraness – gönguleiðsögn á íslensku

2,500 kr
Sale price  2,500 kr Regular price 

Ganga, hlusta, ígrunda – á þínum eigin hraða.

Hvað ef umhverfið sem við þekkjum getur enn komið okkur á óvart?

Hjarta Akraness er hljóðganga frá Akranesvita að Langasandi. Á leiðinni kynnumst við fólkinu sem mótaði bæinn, lífinu við höfnina, baráttu fiskverkakvenna og þeim breytingum sem fylgdu nýjum atvinnuháttum.

Við stöldrum við hús, báta og minnismerki og hlustum á sögurnar sem tengja staðina við líf fólks. Gangan býður líka til ígrundunar: Hvað gerir bæ að samfélagi og hvað viljum við láta vaxa þegar aðstæður breytast?

Hvort sem þú átt heima á Akranesi eða kemur í heimsókn er hér tækifæri til að sjá bæinn nýjum augum.

Það sem fylgir:
• 13 hljóðsögur á íslensku.
• Kortatenglar sem leiða þig milli stoppa.
• Lokalagið „The Sea Is Still Here“, sungið á ensku.
• Samtals um 42 mínútur af sögum og tónlist.

Gert er ráð fyrir 1½–2 klukkustundum í gönguna. Þú ræður ferðinni og getur tekið hlé þegar þér hentar.

Upphaf: Akranesviti.
Endir: Langisandur.

Þú þarft snjallsíma, heyrnartól og nettengingu á leiðinni. Þetta er sjálfstýrð hljóðganga; leiðsögumaður fylgir ekki hópnum.

Kaup á göngunni styðja áframhaldandi efnisgerð HeimVeru.

You may also like