Skip to product information
Litla fræið – hljóðævintýri fyrir fjölskyldur
2,500 kr
Sale price
2,500 kr
Regular price
Litla fræið er sjálfleitt hljóðævintýri fyrir börn 2–4 ára og fullorðna ævintýrafélaga þeirra.
Litla fræið vaknar við dularfulla kitlun og þarf hjálp barnsins til að uppgötva hvað hreyfist í kringum okkur. Ævintýrið leiðir fjölskylduna út í nærumhverfið til að hlusta, leika, hreyfa sig og kynnast vindinum.
- Fimm stuttir hljóðkaflar á íslensku.
- Fjögur leikjahlé með verkefnum á milli kaflanna.
- Um 20–30 mínútna samvera, eða lengur ef barnið vill.
- Hægt að leika á öruggum stað úti, án þess að fara á tiltekinn stað.
- Leiðbeiningar fyrir fullorðna fylgja leiknum.
Verð: 2.500 kr. fyrir alla fjölskylduna — ekki á mann.
Ævintýrið er hluti af verkefninu Ævintýri fyrir öll börn hjá HeimVeru, sem styður áframhaldandi tækifæri fyrir fötluð börn og mæður þeirra í Malaví.